Fyrir liggur á 909. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar tilkynning frá innviðaráðuneyti þar sem tilkynnt er að ráðuneytið hafi fallist á þá tillögu Fjallabyggðar að heimilt verði að landa afla til vinnslu utan sveitarfélagsins með sama hætti og gilti á fiskveiðiárinu 2024/2025.

Ekki var fallist á þá ósk Fjallabyggðar að landa mætti afla á markað.

Innviðaráðuneytið tilkynnti um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2025–2026 og fær Fjallabyggð úthlutað 118 þorskígildistonnum af alls 3.465 tonnum sem ráðstafað er til byggðarlaga um land allt. Auk þess koma til ráðstöfunar eftirstöðvar frá fyrra ári á yfirstandandi fiskveiðiári. Samtals verða því um 248 tonn til ráðstöfunar í Fjallabyggð, þar af 224,5 tonn til Siglufjarðar og 23,5 tonn til Ólafsfjarðar.

Fjallabyggð hafði frest til 19. janúar til að senda ráðuneytinu tillögur að sérreglum um úthlutun byggðakvóta innan sveitarfélagsins.

Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum 6. janúar 2026 og fól bæjarstjóra að leggja fyrir bæjarstjórn drög að reglum um byggðakvóta fyrir Fjallabyggð, með það að markmiði að hámarka nýtingu kvótans. Jafnframt telur bæjarráð mikilvægt að áfram verði óskað eftir auknum sveigjanleika vegna vinnsluskyldu í Fjallabyggð og að heimilt verði að landa afla úr byggðakvóta á fiskmarkað.

Tengt efni: