Átt þú eftir að svara Gallup? – færð þú vinning?

Vert er að minna á að Gallup er að framkvæma könnun um ýmis atriði sem snerta kjör og aðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLS starfsgreinafélags.

Könnunin er jafnframt happdrættismiði því allir sem taka þátt geta unnið veglega vinninga.  Send voru bréf á þá 3.000 félagsmenn sem valdir voru handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga.

Það er von félagsins að þeir sem valdir voru til þátttöku gefi sér tíma til að svara þegar leitað verður til þeirra því það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður og að allir svari svo hægt verði að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn.

Nú þegar hefur þó nokkur fjöldi svarað könnuninni á netinu en starfsmenn frá Gallup munu í vikunni byrja að hringja í þá félagsmenn sem enn eiga eftir að svara. Bæði er hægt að svara símleiðis og í gegnum netið með því að fara inn á vefslóð sem gefin er upp í bréfinu sem félagsmennirnir fengu og nota lykilorð sem þeim var úthlutað.

Niðurstöður fyrri kannana má finna hér

Þátttakendur strax í happdrættispott!
20 þátttakendur lenda strax í happdrættispotti, vinningshafar fá tilkynningu fljótlega eftir að búið er að svara könnuninni. Um er að ræða gjafakort að verðmæti kr. 15.000.

Átta veglegir vinningar eru í boði þegar könnuninni er lokið. Tveir vinningar að upphæð  kr. 150.000 og tveir kr. 50.000 auk fjögurra vikudvala í orlofsíbúðum félaganna.

Þín svör skipta máli.