DÝR – Dýraþjónusta Reykjavíkur sem vinnur ýmis verkefni í góðu samstarfi við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn fær til sín alls kyns skjólstæðinga á hverju ári og koma þeir frá ýmsum afkimum heimsins.

Nýlega sótti starfsmaður Dýraþjónustunnar þessa glæsilegu könguló (sem prýðir forsíðumynd) í Grafarvoginn þar sem hún hafði flust til fjölskyldu einnar með vínberjaklasa frá draumaríkinu Kaliforníu.

Köngulóin reyndist vera ein af undirtegundum hinnar goðsagnakenndu Svörtu ekkju, að öllum líkindum Nyrðri ekkja (Northern Black widow) sem á latínu nefnist Latrodectus variolous.

Það er ekki ofsögum sagt að þessi skepna inniheldur afar öflugt taugaeitur sem hún gefur frá sér við bit. Það er þó sjaldnast banvænt, þar sem magnið er lítið, en afar sársaukafullt.

Sem betur fer er þessi tegund hins vegar hlédræg með eindæmum og lítið fyrir að bíta fólk.

Á myndinni er ekkjan ásamt nokkrum eggjum hennar sem hún varðveitir af ákefð. Náttúrufræðistofnun hefur nú fengið ekkjuna til frekari greiningar og varðveislu.

Mynd og heimild/DÝR – Dýraþjónusta Reykjavíkur