Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 vegna afmörkunar kirkjugarðsins á Saurbæjarási var auglýst með athugasemdafrest frá 11. ágúst til 28. september 2023.
Fimm umsagnir bárust vegna tillögunnar. Náttúrufræðistofnun Íslands sendi inn sameiginlega umsögn fyrir aðalskipulags- og deiliskipulagstillöguna.
Umsagnir bárust einnig frá Sóknarnefnd Siglufjarðarkirkju, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni sem gerðu engar athugasemdir við tillöguna.
Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar leggur til við bæjarstjórn að breyting á aðalskipulagi verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar og staðfestingar.
Fylgiskjöl:
- 230612_ASFjalla_Saurbæjarás.pdf
- 1. Umsögn – Júlía Birna Birgisdóttir.pdf
- Umsögn NÍ Kirkjugarður Siglufirði.pdf
- Saurbæjarás aðal- og deiliskipulag Minjastofnun Íslands.pdf
- Breyting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar, kirkjugarður á Saurbæjarhálsi, umsögn.pdf
- 4. Umsögn – Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra.pdf