Fiskdagurinn mikli hefur heiðrað einstaklinga, hópa eða tímabil tengdu sjávarútveginum frá upphafi eða í 19 ár. Ávallt er veittur glæsilegur gripur smíðaður og hannaður af Jóhannesi Hafsteinssyni frá Miðkoti Dalvík og eins svo margt annað þá gerir hann það í anda Fiskidagsins í sjálfboðavinnu með bros á vör. Svanfríður Inga Jónasdóttir fyrrverandi bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð  sér um utanumhald heiðrunarinnar.

Fiskidagurinn mikli 2019 heiðrar Gunnar Arason, fyrrverandi skipstjóra. Gunnar er heiðraður fyrir framlag sitt til sjávarútvegs og farsælan skipstjóraferil með skip frá Dalvík. Hann varð skipstjóri hjá útgerð Aðalsteins Loftssonar á Dalvík árið 1963, þá aðeins 22 ára gamall, fyrst með Baldvin Þorvaldsson EA 24 og síðan Loft Baldvinsson EA 124.

Árið 1968 tók hann við nýju og glæsilegu skipi, Lofti Baldvinssyni EA 24. Síldin hafði þá breytt göngu sinni frá hefðbundnum miðum íslenskra fiskiskipa. Hinu nýja skipi var þá um haustið haldið til veiða í Norðursjónum og náði á stuttum tíma frábærum árangri við síldveiðar þar og frágang aflans, sem tryggði þeim hæstu verð. Það varð með öðru til þess að Loftur Baldvinsson EA 24 var um árabil með mestu verðmæti allra íslenskra fiskiskipa.  Gullaldarár skipsins voru þegar best gekk í Norðursjónum á árunum 1970 til 1975.

Skipverjar á Lofti Baldvinssyni voru flestir frá Dalvík og það munaði um það  að tekjuhæstu sjómenn landsins bjuggu hér. Það er stundum talað um það að heil gata hafi meira og minna verið byggð einbýlishúsum skipverja á Lofti á þessum árum.

Aukin verðmæti vegna gæða aflans urðu aðall áhafnar Lofts Baldvinssonar og þar fór skipstjórinn fremstur meðal jafningja.

 

Forsíðumynd: Gunnar Arason og Svanfríður Inga Jónasdóttir, ljósmyndari, Bjarni Eiríksson.