Fjallabyggð óskar eftir verðtilboði í verkið:
Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikhólar Ólafsfirði.

Verkið felst í reglulegri ræstingu og sumarhreingerningu á starfsstöð Leikskóla Fjallabyggðar í Ólafsfirði (Leikhólum) samkvæmt útboðslýsingu. 

Heildarfjöldi fermetra í verðkönnun er 379,2 m².

Reiknað er með að verktími hefjist þann 1. apríl 2023 og að gerður verði verksamningur um verkið til 21 mánaða (1,75 ár), eða til 31. desember 2024, með möguleika á framlengingu til eins árs.

Vettvangsskoðun mun fara fram þriðjudaginn 31. janúar kl. 15:00.

Um er að ræða rafrænt útboð, útboðsgögn eru afhent frá og með fimmtudeginum 19. janúar rafrænt. Skal ósk um afhendingu gagna berast á netfangið rikey@fjallabyggd.is.

Verðtilboði ásamt tilskildum fylgigögnum skal skilað fyrir kl. 11:00 mánudaginn 13. febrúar 2023 með rafrænum hætti á netfangið rikey@fjallabyggd.is.

Verðtilboð skal auðkennt svo:

„FJAL-2023-1: Verðkönnun: Ræsting fyrir Leikskóla Fjallabyggðar. Leikhólar Ólafsfirði“

Opnunartími tilboða verður mánudagur 13.febrúar 2023 kl. 11:00 á skrifstofu Fjallabyggðar.

Allar nánari upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir, Netfang: rikey@fjallabyggd.is, Sími: 464 9100

Auglýsing pdf