Norðanátt, með stuðningi frá umhverfis- orku- og loftlagsráðuneytinu, stendur fyrir Fjárfestahátíð á Siglufirði dagana 29. – 30. mars 2023.

Fjárfestahátíð Norðanáttar er vettvangur fyrir frumkvöðla sem hugsa stórt og vilja kynna sínar hugmyndir fyrir fjárfestum og þar með auka fjárfestingatækifæri á  landsbyggðinni.

Á fjárfestahátíðinni, sem haldin er í marsmánuði ár hvert, kynna frumkvöðlar verkefni sín sem snerta orkuskipti, hringrásarhagkerfið eða fullnýtingu auðlinda í takt við áherslur Norðanáttar; matur, orka, vatn.