Fjölbreyttar úrlausnir bárust í áfanga um kvennasögu í MTR þegar fyrir var lagt verkefni um konur í jaðarhópum.

Nemendur máttu skilgreina jaðarhóp og skilin máttu vera á ýmsu formi, t.d. ljóð, lag, örsaga, máluð mynd, stuttmynd, hlaðvarp eða teiknimynd.

Þessi uppsetning krefst þess að nemendur nýti sköpunarkraftinn og sýni sjálfstæði í vali og útfærslu verkefnis.

Margar áhugaverðar og frumlegar úrlausnir bárust. Til dæmis ljóð um Freyju Haraldsdóttur, mynd og frásögn af Töru Margréti Vilhjálmsdóttur, hlaðvarp um OnlyFans og kynningar á Uglu Stefaníu Kristjönudóttur og Sunnevu Jónsdóttur.

Kvennasöguáfanginn er kenndur í annað sinn og eru nemendur vel á þriðja tug. Kennari er Birgitta Sigurðardóttir. Hér er hægt að skoða úrlausnir vikunnar um jaðarhópa.

Skoða á vef Menntaskólans á Tröllaskaga – MTR