Fyrirlesturinn “Sigrum streituna” með fyrirlesaranum Sölva Tryggvasyni var haldin nýlega í Árskóla. Var þetta fyrsti viðburðurinn á vegum Heilsueflandi Samfélags í Skagafirði og fór viðburðurinn fram úr björtustu vonum.
Fyrirlesturinn var opinn öllum og mættu um 150 manns á viðburðinn.

Fyrirlesturinn er byggður á bók sem Sölvi Tryggvason gaf út nýverið sem ber heitið “Á eigin skinni” þar sem Sölvi fer yfir þær aðferðir sem hann hefur prófað til að ná betri heilsu.

Í byrjun fyrirlestrarins var verkefni Heilsueflandi Samfélag – Skagafjörður kynnt og rætt um framgang verkefnisins. Fulltrúar stýrihóps verkefnisins voru kynntir.

Sjá nánar á skagafjordur.is