Fjögur ný covid-19 smit greindust í gær í Norðurlandi vestra, en af þeim voru þrír í sóttkví. Í sóttkví eru 72 einstaklingar.
Unnið er að smitrakningu og er af þeim sökum töluverður fjöldi kominn í úrvinnslusóttkví. Niðurstöður úr skimunum ættu að liggja fyrir í kvöld eða í fyrramálið.
Aðgerðastjórnin vill minna íbúa Norðurlands vestra á að gæta allra persónulegra sóttvarna og minnast þess einnig að stríðið við Covid-19 er ekki liðið hjá, veiran er ennþá úti í samfélaginu.
Við þurfum öll að vera á varðbergi. Það er aldrei of oft ítrekað að finni einstaklingar fyrir einkennum, fari þeir ekki á meðal fólks heldur fari í skimun. Almannavarnir byrja heima.