Íbúar í Fjallabyggð geta tekið gleði sína á ný því þjóðlagahátið verður haldin á Siglufirði dagana 7. – 11. júlí.

Hátíðin féll niður í fyrra vegna faraldursins en nú er stefnt að því að 21. þjóðlagahátíðin verði haldin í júlí.

Gunnsteinn Ólafsson listrænn stjórnandi hátíðarinnar segir að nokkrir frábærir erlendir listmenn komi fram á hátíðinni auk íslenskra tónlistarmanna.

„Ragnheiður Gröndal heldur námskeið í þjóðlagaútsetningum, kennt verður á ukulele og fjölbreytt afrónámskeið verður haldið. Öll námskeið eru að þessu sinni ókeypis.“

Hátíðin hlaut fyrst allra Eyrarrósina fyrir frábært menningarstarf á landsbyggðinni.

En miklu skiptir að hátíðin verði vel sótt.
„Ég hvet alla íbúa Fjallabyggðar til að taka virkan þátt í þessari alþjóðlegu tónlistarveislu“, segir Gunnsteinn að lokum.

Stórsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson er af siglfirskum ættum.
Hann kemur fram á opnunartónleikum þjóðlagahátíðar 7. júlí.
Þýsku gítarleikararnir Uwe Eschner og Axel Meyer leika suður-amerískar ballöður.
Norska slagverkssveitin SISU verður í ham á Þjóðlagahátíðinni í sumar.

Dagskrá hátíðarinnar má sjá á siglofestival.com.