Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála á 698. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar þar sem lagt er til að þar til tekist hefur að bæta aðstöðu á tjaldsvæði Fjallabyggðar í Ólafsfirði fyrir tjaldsvæðagesti verði fyrirkomulag sem gilti sumarið 2020 framlengt.

Með hverri gistinótt muni fylgja einn sundmiði pr. gest þar til nýtt þjónustuhús er risið. Mikil ánægja var með þessa lausn síðasta sumar. Með því móti er komið til móts við gesti vegna aðstöðuleysis (sturtuleysis) og er til þess fallið að laða fjölskyldufólk að tjaldstæðinu.

Bæjarráð samþykkir að sundmiði fylgi hverri gistinótt fyrir tjaldsvæðagesti á tjaldsvæði Fjallabyggðar í Ólafsfirði.

Sturtuaðstaða er fyrir gesti tjaldsvæðisins í miðbænum á Siglufirði, en sturtaaðstaða er ekki á tjaldsvæðinu við Stóra Bola.