Gítarleikarann Reynir del Norte og slagverksleikarinn Einar Scheving leiða saman hesta sína og kalla fram Flamenco töfra á Kaffi Klöru í Ólafsfirði í kvöld kl. 20:00.

Reynir hefur búið um árabil í Granada þar sem hann vinnur sem Flamenco listamaður. Einar Scheving þarf vart að kynna en hann hefur verið í framlínu íslenskrar tónlistar síðustu áratugi.

Efnisskráin samanstendur af íslenskum lögum sem þeir hafa útsett á fyrir Flamenco ásamt eigin tónsmíðum Reynis.

Aðgangur er ókeypis og opnar húsið kl. 19.30.