Starfsmannafélag HSN í Fjallabyggð verður með flóamarkað við Sjúkrahúsið á Siglufirði í dag föstudaginn 6. september frá kl. 13:00 – 19:00.
Markaðurinn verður haldinn í bílskúr stofnunarinnar á Siglufirði og á boðstólnum verður fatnaður og ýmiskonar varningur á sanngjörnu verði.
Myndirnar vor teknar þegar starfsmenn starfsmannafélagsins voru að stilla upp fyrir markaðinn.
Það er um að gera að drífa sig og gera reyfarakaup í dag.
Myndir: aðsendar