Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar hefur það að markmiðið sínu að leggja grunnskólanum lið við ýmislegt sem kemur nemendum til góða.

Ýmist tekur félagið þátt í að fá til skólans fyrirlesara eða færa nemendum eitthvað sem gleður og gangast vel.

Nú í vor færði foreldrafélagið skólanum að gjöf, fjóra fatboy púða sem staðsettir eru í Tjarnarstíg.

Er foreldrafélaginu þakkað fyrir góða gjöf sem gladdi alla og nemendur kátir með eins og sjá má á myndum, segir á vefsíðu Grunnskóla Fjallabyggðar.

Myndir: Grunnskóli Fjallabyggðar