Ákveðið hefur verið að halda Sápuboltamótið í ár, forsvarsmenn mótsins segja að “annað væri líka fáránlegt þar sem sápuboltinn er ein geggjuð sótthreinsunarstöð.

Núna þegar aðeins er farið að birta til og eftirspurn eftir mótinu í ár fór að fara fram úr öllu valdi fórum við að skoða málin og teljum við okkur vel geta haldið mótið í ár, umgjörðin í kringum mótið verður í minni sniðum en hefur verið, en á móti kemur þá ætlum við að lækka mótsgjaldið. Varðandi skemmtun um kvöldið þá erum við að ennþá að skoða málin.

Við göngum þó útfrá því að spár stjórnvalda varðandi afléttingu takmarkana gangi eftir. Ef spár ganga ekki eftir og ekki verður hægt að halda viðburðinn verður öllum þeim sem greitt hafa þátttökugjald endurgreitt”.

SKRÁNINGARGJALD
Skráningargjald er 3.500 kr. á hvern liðsmann (Einn liðsmaður greiðir fyrir allt liðið).

-Inni í því gjaldi er þátttökupassi á Sápuboltamótið.

Til þess að skrá lið þarf að senda á okkur facebook skilaboð hér í gegnum þessa síðu þar sem fram kemur;
-Nafn liðs
-Fjöldi liðsmanna
-Fyrirliði liðsins

Þá fáiði skilaboð til baka um það hvernig skráningargjaldið er greitt.
Skráning er ekki staðfest fyrr en greiðsla hefur borist.

LEIKREGLUR
-Fjórir inni á vellinum í hvoru liði. Engin takmörk eru á skiptimönnum (fjölda aðila í hverju liði).
-Hver leikur er 1×10 mín.
-Frjálsar skiptingar.
-Dómari ákveður refsingar fyrir brot.
-Spilað á tánum

Á sápuboltamótinu hefur verið rík hefð fyrir því að liðin mæti til leiks í skrautlegum búningum og eru liðin hvött til að halda þeirri hefð áfram.

Eftir mót verða verðlaun veitt fyrir flottasta búninginn ásamt öðrum skemmtilegum viðurkenningum.

ALDURSTAKMARK
Mótið er einungis ætlað einstaklingum sem náð hafa 18 ára aldri.


Mynd: Guðný Ágústsdóttir