Andlistgrímur, hanskar og blautklútar er efni sem ekki er hæft til endurvinnslu og því má ekki flokka það í endurvinnslu tunnuna.

Ef þessi efni eru sett í endurvinnslu tunnurnar fer það saman við almenna sorpið sem er urðað.

Munum að flokka rétt í COVID 19. Gerum þetta rétt segir á heimasíðu Terra – við erum öll í þessu saman.

Allt sem viðkemur sóttvörnum og snertir okkur beint: grímur, hanskar, snýtuklútar og allt þetta dót sem við snertum og berum á okkur þarf að fara í almennt sorp.

Þið sem eruð í sóttkví eða einangrun: allt í lokaða poka!

Ekki henda hönskum og grímum út í buskann. Það er ekki bara óumhverfisvænn sóðaskapur sem skaðar náttúruna – heldur líka smitandi og hættulegt.