Í síðustu viku naut Síldarminjasafn Íslands liðsinnis Nathalie Jacqueminet, en Nathalie er forvörður og starfar við Listasafn Íslands.

Einn margra áfanga í því viðamikla verkefni að koma fullkominni reiðu á safnkost Síldarminjasafnsins er að búa vel um listaverk safnsins; skrá þau, ljósmynda, ástandsmeta og koma til varðveislu í Salthúsinu.

Nathalie aðstoðaði starfsfólk safnsins við að meta umfang listaverkanna og festa kaup á hillurekkum og sýrufríum umbúðum. Nú hefur öllum verkunum verið komið vel fyrir í nýjum hillum í Salthúsinu auk þess sem starfsfólkið fékk dýrmæta kennslu og þjálfun í ýmsum atriðum er snúa að varðveislu listaverka.

Sérlega spennandi var að fá innsýn í fyrri viðgerðir og forvörslu á verki Gunnlaugs Blöndal, Konur í síldarvinnu, en innan skamms verður það gestum aðgengilegt í Salthúsinu.

Mynd/Síldarminjasafn Íslands