Stjórn fjallskiladeildar vill í aðdraganda stóðsmölunar og rétta leggja sitt af mörkum til að draga úr líkum á hópsmiti með því að minna á fyrri tilkynningu frá sveitarfélaginu um að bændur sem eiga hross á afrétt sjá um smölun og réttarstörf þetta árið.
Mælst er til þess að gestir komi ekki á föstudeginum til að ríða niður með stóðið.
Í réttina á laugardeginum mæta einungis til starfa þeir sem hafa fengið til þess leyfi fjallskiladeildar.
Hliðvarsla verður við réttina.