Niðurstöður íbúakosningar í Fjallabyggð 14. apríl 2018 liggja fyrir. Kosið var um hvort fræðslustefna Fjallabyggðar sem samþykkt var í bæjarstjórn 18.05.2017 haldi gildi sínu.
Spurt var: Vilt þú að stefnan haldi gildi sínu?
Valkostir:
Já, ég vil að fræðslustefnan sem var samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 18.05.2017 haldi gildi sínu.
Nei, ég vil að fræðslustefnan sem var samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 18.05.2017 verði felld úr gildi og fyrri fræðslustefna frá 17.03. 2009 taki gildi á ný.
Niðurstöður:
Já sögðu : 523, – 62,34%
Nei sögðu 309, – 36,83%
Auðir og ógildir seðlar voru 7 – 0,83%
Kosningarþátttaka var 52,5%
Frétt af vef: Fjallabyggðar
Mynd: Kristín Sigurjónsdóttir