Á 667. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar var samþykkt að framlög til stjórnmálasamtaka vegna 2020, kr. 360.000 verði úthlutað í samræmi við ákvæði 5. gr. laga nr. 162/2006 eftir kjörfylgi í kosningum 2018.

Framlög koma til greiðslu í október 2020.

Skipting framlags:

H-listi fyrir heildina 371 30,73% 110.628

D-listi Sjálfstæðisflokks 539 44,66% 160.776

 I-listi betri Fjallabyggð 297 24,61% 88.596