Ársreikningur Fjallabyggðar var lagður fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 11. maí 2021.
Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
- A – hluti bæjarsjóðs var rekinn með rúmlega 26 mkr. afgangi.
- Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs Fjallabyggðar (A+B hluti) var jákvæð um 77 mkr. fyrir árið 2020, en var jákvæð um 391,7 mkr. árið 2019.
- Rekstrartekjur A og B hluta námu 3.130 mkr. á árinu 2020, en voru 3.114 mkr. árið 2019.
- Rekstrargjöld ársins 2020 námu 2.854 mkr. en voru 2.536 mkr. árið 2019.
- Veltufé frá rekstri nam 377 mkr. eða 12,1% miðað við 671 mkr. árið 2019 (21.5%)
- Ef veltufé frá rekstri væri eingöngu notað til greiðslu langtímaskulda tæki það 0,84 ár.
- Handbært fé í árslok var 360 mkr.
- Veltufjárhlutfall var 1,48.
- Eignir eru samtals 5.953 mkr. en voru 5.906 mkr. árið 2019.
- Vaxtaberandi skuldir samstæðu eru 316 mkr. en voru 348 mkr. árið 2019.
- Skuldaviðmið er 23,3%, en var 21.4% árið 2019. Viðmið samkvæmt sveitarstjórnalögum er að hámarki 150%.
- Eigið fé bæjarsjóðs Fjallabyggðar er 3.898 mkr. eða 65,5%, en var 3.821 mkr. eða 67,7% árið 2019.
- Fjárfestingar á árinu 2020 voru 325 mkr. en áætlun gerði ráð fyrir 454 mkr.
- Alls var varið 196 mkr. í viðhald eigna sem er 77 mkr. meira en áætlun gerði ráð fyrir
Ársreikningurinn Fjallabyggðar vegna ársins 2020 sýnir glögglega að fjárhagsstaða bæjarsjóðs er traust og að rekstur sveitarfélagsins er í mjög góðu lagi og staða þess sterk. Einnig ber ársreikningurinn þess merki að hjá sveitarfélaginu ríkir og ráðdeild og varkárni en um leið mikill vilji til að standa vörð um þjónustu og að viðhalda sem og byggja upp trausta innviði
Upplýsingar veitir
Elías Pétursson
bæjarstjóri
S. 892 0989
Eftirfarandi er bókum bæjarstjóra við afgreiðslu ársreikningsins.
Til máls tók Elías Pétursson bæjarstjóri og lagði fram eftirfarandi bókun:
Jákvæð rekstrarniðurstaða A og B hluta bæjarsjóðs 2020 var jákvæð um 77 millj. kr. og A hluta um 26 millj. kr. Veltufé frá rekstri nam 377 millj. kr. eða 12.1% af tekjum. Vaxtaberandi skuldir voru um áramót 316 millj. kr. en voru 348 millj. kr 2019. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 3.898 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi en eigið fé A hluta um 3.440 millj. kr. Ársreikningur 2020 er birtur í heild sinni sem fylgiskjal með fundargerð þessari og mun í framhaldi af fundi bæjarstjórnar verða birtur á heimasíðu Fjallabyggðar.
Afkoma samstæðu er nokkru lakari en samþykkt fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Meginástæða lakari afkomu samstæðu er mikil hækkun launakostnaðar en hann reyndist vera 165 millj. kr. hærri en gert var ráð fyrir í samþykktri fjárhagsáætlun. Þar veldur mestu miklar launahækkanir, oftar en ekki afturvirkar, og aukið álag á starfsfólk sem má rekja til Covid-19. Einnig sést þess stað í rekstrarniðurstöðu ársins að bæjarstjórn ákvað að bæta í hvað varðar viðhald eigna m.a. með það að markmiði að verja gott atvinnuástand. Á síðasta ári voru 196 millj. kr. settar í viðhald eigna sveitarfélagsins sem er 77 millj. kr. meira en samþykkt fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Eignfærðar framkvæmdir voru 325 millj. kr. Öll fjárfesting ársins var fjármögnuð af handbæru fé og án lántöku.
Að lokum vil ég þakka starfsfólki bæjarins og kjörnum fulltrúum óeigingjarnt framlag til þess árangurs sem náðist í rekstri sveitarfélagsins á undanförnu mjög svo krefjandi rekstrarári.
Eftirfarandi er bókum meirihluta D og I lista við afgreiðslu ársreikningsins
Forseti bæjarstjórnar hvað sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd meirihluta D og I lista.
Meirihluti D og I lista fagnar þeim árangri sem sjá má stað í framlögðum ársreikningi enda ber hann með sér ábyrgð og ráðdeild ásamt að sýna vel hvernig sveitarfélagið hefur staðið vörð um öfluga grunnþjónustu og kröftugt atvinnulíf á krefjandi tímum. Meirihluti D og I lista þakkar öllu starfsfólki sveitarfélagsins fyrir einstakt framlag til þess árangurs sem náðst hefur og sjá má stað í framlögðum ársreikningi.
Framlagður ársreikningur Fjallabyggðar 2020 borin upp til afgreiðslu og samþykktur samhljóða með 7 atkvæðum og undirrita kjörnir fulltrúar ársreikninginn því til staðfestingar, ásamt ábyrgðar – og skuldbindingaryfirliti.