Við Menntaskólann á Tröllaskaga er kenndur áfanginn LÝÐH2GR05, sem er heilsuræktaráfangi með forvarnargildi þar sem lögð er áhersla á andlega líðan og geðrækt. Þar er fjallað um áskoranir daglegs lífs, streituvalda og aðferðir til að takast á við kvíða og depurð.

Meðal námsmarkmiða er að læra að gagnrýna á uppbyggilegan hátt og taka gagnrýni. Áhersla er á æfingar í formi leikja og fjölbreyttir kennsluhættir lagaðir að námshópnum hverju sinni.

Hópurinn á myndinni fjallaði um tilfinningar og ræddi viðbrögð við vonbrigðum, depurð og reiði. Einnig áttu þau að skrifa um hvað hjálpaði þeim að sofna og hvernig þau nota tónlist við mismunandi aðstæður. Kennari í áfanganum er Lísebet Hauksdóttir.


Mynd: Gísli Kristinsson