Stýrihópur um heilsueflandi samfélag, Skíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg, ætla að standa sameiginlega fyrir námskeiðum í skíðagöngu fyrir íbúa Fjallabyggðar í janúar 2024.
Fyrirhugað er að námskeiðin verði tvö, í sitt hvorum bæjarhluta Fjallabyggðar.
Hvort námskeið verður í þrjú skipti, 1 – 1,5 klst í senn. Námskeiðin eru endurgjaldslaus fyrir íbúa Fjallabyggðar, 17 ára og eldri, jafnt byrjendur sem lengra komna.
Þátttakendur mæta með sinn skíðabúnað á námskeiðin en fyrir þá sem ekki eiga og geta ekki útvegað sér búnað, verður hægt að fá leigð skíði hjá Skíðafélagi Ólafsfjarðar.
Í framhaldi af námskeiðum hafa skíðafélögin hugsað sér áframhaldandi starf fyrir fullorðna.
Nánari tímasetning námskeiðanna verður auglýst þegar nær dregur og er að sjálfsögðu með fyrirvara um nægan snjó.
Mynd: Rósa Jónsdóttir