Hafnarstjóri lagði fram og fór yfir tölur um landaðan afla á 142. fundi hafnarstjórn Fjallabyggðar, með samanburði við fyrra ár.

Á Siglufirði höfðu þann 12. desember 13123 tonn borist á land í 1162 löndunum, samtímatölur fyrra árs eru 13040 tonn í 1321 löndunum.

Á Ólafsfirði höfðu 135 tonn borist á land í 122 löndunum, samtímatölur fyrra árs eru 411 tonn í 156 löndunum.