Á 346. fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 8. júní 2022 var samþykkt sú tillaga að fundir sveitarstjórnar verði að jafnaði haldnir þriðja þriðjudag hvers mánaðar í Ráðhúsi Dalvíkur, í Upsa á 3. hæð kl. 16:15, og verði auglýstir með tveggja daga fyrirvara á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.

Fundir sveitarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls, sbr. 12. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar.

Dalvíkurbyggð, 27. júní 2022.

Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs/staðgengill sveitarstjóra

Mynd/Dalvíkurbyggð