
Ríkisstjórnin ákvað á síðasta ári að veita 15 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til að styrkja gerð minnisvarða um þátt síldarstúlkna í íslensku atvinnu- og efnahagslífi á síðustu öld. Ráðgert er að minnisvarðinn verði staðsettur á sérbyggðu plani við Síldarminjasafnið á Siglufirði. Síldarminjasafnið er eitt stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga.
Á þessu ári verða liðin 120 ár frá því að Norðmenn hófu síldveiðar frá Siglufirði, en síldveiðar við Ísland hófust fyrir rúmum 150 árum. Fyrirhugað er að minnisvarðinn verði vígður í lok júlí með veglegri helgardagskrá á Siglufirði þar sem framlag síldarstúlkna verður sérstaklega heiðrað.
Gerð hefur verið frummynd af minnisvarðanum og eru það fagmenn hjá SR-Vélaverkstæði á Siglufirði sem smíða verkið. Minnisvarðinn verður gerður úr sérstöku stáli sem norðlenskt veðurfar, sjóselta, rok, rigning, snjór og frost, vinnur ekki á.
Forsíðumynd/SR-Vélaverkstæði