Fyrirkomulag heimsókna á hjúkrunar- og sjúkradeild HSN Fjallabyggð á aðventu og yfir jólahátíðina verður sem hér segir.
- Fram að hátíðum. Opið alla daga fyrir heimsóknir og getur einn gestur komið í heimsókn á dag. Gestir mega ekki dvelja í almennum rýmum, heldur eingöngu inni hjá íbúa. Ekki er opið fyrir heimsóknir á matmálstímum, (á einnig við á aðfangadags- og jólakvöldi).
Heimsóknarreglur fyrir hátíðarnar HSN Fjallabyggð.
Panta þarf tíma, hafið samband í síma 460 2174
- Á Aðfangadag er heimsóknartími kl. 13:00-17:00 og 19-22.00
- Á Jóladag er heimsóknartími kl. 13:00-17:00
- Á Annan í jólum er heimsóknartími kl. 13:00-17:00
- Á Gamlársdag er heimsóknartími kl. 13:00-17:00 og 19-22.00
- Á Nýársdag er heimsóknartími kl. 13:00 – 17:00
- Hvetjum við til að nýta rafræn samskipti; sá sem kemur í heimsókn getur tengst öðrum ættingjum rafrænt og þannig skapað hátíðlega samverustund.
- 1-2 gestir geta komið þessa daga. Börn yngri en 18 ára eru velkomin og teljast þau þá annar af þessum tveimur gestum.
- Alfarið er mælst gegn því að íbúar fari í heimsókn til ættingja á þessum tíma. Eftir slíka heimsókn þarf íbúi að fara í sóttkví með ættingja á hans heimili og sýnatöku að sóttkví lokinni áður en heimild er veitt til að koma aftur inn á hjúkrunarheimilið.
- Gestur má ekki koma inn á hjúkrunar- eða sjúkradeild nema hafa sinnt eigin sóttvörnum í hvívetna. Fólk sem kemur erlendis frá verður að hafa lokið sóttkví og neikvæð niðurstaða seinni sýnatöku þarf að liggja fyrir. Gott er að láta 3 daga líða til viðbótar áður en komið er inn á hjúkrunarheimili.
- Stjórnandi heimilis getur veitt undanþágu frá þessum reglum við mikil veikindi eða sambærileg atvik.
– Munið að spritta hendur við komu og áður en þið yfirgefið heimilið.
– Allir gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska). Óheimilt er að koma með taugrímu.
– Vinsamlega hafið grímuna á ykkur allan tímann á meðan heimsókn stendur.
– Vinsamlega farið beint inn á herbergi íbúa, ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi þá biðjið þið starfsfólk að sækja hann, ekki gera það sjálf.
– Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa.
– Heimilt er að fara með íbúa út í göngutúr í nærumhverfi á meðan heimsókn stendur.
– Ekki er heimilt að fara í heimsókn með heimsóknargesti sínum.
Vinsamlega EKKI koma í heimsókn ef:
- Þú ert í sóttkví eða einangrun.
- Þú bíður eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
- Þú ert með flensulík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
- Þú varst erlendis og hefur ekki fengið neikvæða niðurstöðu úr seinni sýnatöku.
Við biðlum til ættingja að leggja eigin hagsmuni til hliðar fyrir hagsmuni heildarinnar.
Deildarstjóri