Kristján Andri Stefánsson sendiherra afhenti í dag Felipe VI Spánarkonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands á Spáni. Hann er jafnframt fyrsti íslenski sendiherrann sem hefur aðsetur í Madrid höfuðborg Spánar og þjónar umdæminu þaðan.
Á fundi sínum með konungi og utanríkisráðherra Spánar var stofnun sendiráðs á Spáni fagnað og rætt um leiðir til að efla og styrkja farsæl tengsl Íslands og Spánar enn frekar bæði á sviði viðskipta og menningar.
Alþingi ákvað við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2025 að opnað yrði sendiráð í Madrid á Spáni á þessu ári. Tillagan var rökstudd með vísan til þess mikla fjölda Íslendinga sem hefur fasta búsetu á Spáni til lengri og skemmri tíma auk þess sem þangað liggur stríður straumur ferðamanna árið um kring. Viðskipti milli landanna standa jafnframt á gömlum merg. Vöruútflutningur frá Íslandi til Spánar hefur aukist jafnt og þétt síðasta áratuginn og sum árin hefur Spánn verið einn stærsti einstaki vöruútflutningsmarkaðurinn eftir því hvað mikið af áli hefur farið til Spánar.
Spánn er jafnframt þriðji mikilvægasti útflutningsmarkaður sjávarafurða frá Íslandi með stöðuga 8% hlutdeild í heildarútflutningsverðmætum. Saltfiskur vegur enn þungt í útflutningi frá Íslandi en útflutningur á frosnum afurðum og í seinni tíð á laxi hefur sömuleiðis farið vaxandi. Á undanförnum árum hefur verið umtalsverður jákvæður viðskiptahalli í vöruviðskiptum landanna en í þjónustuviðskiptum snýst dæmið við enda er Spánn vinsæll áfangastaður fyrir íslenska ferðamenn. Fasteignakaup Íslendinga á Spáni eru einnig umtalsverð.
Íslensk stjórnvöld hafa átt í farsælu samstarfi við spænsk stjórnvöld á sviði utanríkis- og öryggismála og spænski flugherinn sinnti nýverið loftrýmisgæslu á vegum Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Spánn hefur jafnframt skipað sér í fremstu röð þeirra sem fordæma harðlega hernaðaraðgerðir Ísraels á Gaza og hafa beitt sér fyrir aðgerðum til að setja aukinn þrýsting á Ísrael, m.a. á vettvangi Evrópusambandsins. Mikill samhljómur er ennfremur með stefnu íslenskra og spænskra stjórnvalda að því varðar mannréttindavernd, loftslagsmál og þróunarsamvinnu.
Ötullega hefur verið unnið að opnun sendiráðsins að undanförnu. Sendiherra og starfslið sendiráðsins er þegar tekið til starfa en sökum endurbóta á skrifstofuhúsnæði sendiráðsins getur skrifstofan þó ekki opnað fyrr en seinna í haust. Nánar verður tilkynnt um það síðar.

Myndir/aðsendar