Palli og Helga opna Gestaherbergið klukkan 17:00 í dag og halda því opnu til klukkan 19:00 með beinni útsendingu úr stúdíói III í Noregi.

Í dag verður fuglaþema og því lög tengd þessu þema verða spiluð. Viltu þú heyra óskalagið þitt í þættinum? Jafnvel þemaóskalag?
Það verður hægt að hringja í þáttinn í síma 5800 580.

Juha sendir líklega lag í þáttinn, kíkt verður á fréttir og þuldar upp staðreyndir sem tengjast fuglum.

Missið ekki af þættinum Gestaherbergið í dag klukkan 17 til 19 á FM Trölla og á trölli.is

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.