Í dag, 17. maí, er þjóðhátíðardagur Noregs og því ber að fagna.
Á vefsíðunni https://www.norden.org er hægt að sjá eftirfarandi staðreyndir ásamt fleiri upplýsingum um landið.
Í Noregi er þingbundin konungsstjórn. Haraldur V. Noregskonungur hefur engin raunveruleg pólitísk völd og þingið, Stórþingið, fer með æðsta valdið. Noregur á ekki aðild að ESB en er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu, EES. Noregur á aðild að NATO.
- Þjóðhátíðardagur: 17. maí (Noregur fékk stjórnarskrá 17. maí 1814)
- Stjórnarfar: Þingbundið konungsríki
- Þing: Stórþingið (169 fulltrúar)
- Aðild að ESB: Nei
- Aðild að EES: Frá 1. janúar 1994
- Þjóðhöfðingi: Haraldur V. Noregskonungur
- Forsætisráðherra (september 2021): Jonas Gahr Støre (Arbeiderpartiet)
Norðmenn halda þjóðhátíðardaginn sinn virkilega hátíðlegann. Eins og sjá má á myndunum hér að ofan og neðan er fólk mjög mikið uppá búið í því sem Norðmenn kalla “bunad”, sem eru þjóhátíðarbúningar.
Á meðal þeirra tónlistarmanna og hljómsveita sem koma frá Noregi má nefna Edvard Grieg, Kygo, A-ha, Røyksopp, Alan Walker, Sigrid, Alexandra Rotan, Dimmu Borgir, Turbonegro og Ole Bull, Sissel Kirkebø svo einhverjir séu nefndir.
Við í Gestaherberginu óskum norðmönnum hjartanlega til hamingju með daginn og munum leika norsk lög í bland við önnur lög.
Gestaherbergið er á dagskrá á þriðjudögum frá klukkan 17:00 til 19:00 á FM Trölla og trölli.is
FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á “hlusta” á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is