Trölli.is óskar lesendum sínum gleðilegra páska 🐣

Páskarnir miðast við samnefnda hátíð gyðinga, en tímatal gyðinga byggir á tunglári og þess vegna eru páskarnir ekki alltaf á sama tíma.

Páskarnir geta verið á rúmlega mánaðartímabili á vorin. Páskadagur er fyrsti sunnudagur eftir fyrsta fulla tungl eftir vorjafndægur (frá og með 21. mars).

Páskadagur getur í fyrsta lagi fallið á 22. mars og í síðasta lagi á 25. apríl en allar dagsetningar þar á milli koma til greina.

Dagarnir fyrir páska eru oft frídagar í íslenskum skólum og á sumum vinnustöðum.  Þar eru nokkrir kristnir hátíðisdagar:

    • Pálmasunnudagur: Samkvæmt Mattheusarguðspjallinu reið Jesú á asna inn í Jerúsalem til að halda páskadag gyðinga. Hann heitir Pálmasunnudagur því að margir veifuðu pálmagreinum til að fagna honum. Dagurinn er ekki almennur frídagur eða stórhátíðardagur en fellur náttúrulega alltaf á sunnudegi, sem eru frídagar (eða unnir með helgarálagi).
    • Skírdagur: Fimmtudagurinn fyrir páska, en þá borðaði Jesús “síðustu kvöldmátíðina” með lærisveinunum sínum og þvoði fætur þeirra.  Skír þýðir hreinn í þessu samhengi. Skírdagur er almennur frídagur.
    • Föstudagurinn langi: Þá var Jesús krossfestur.  Stórhátíðardagur.
    • Laugardagurinn fyrir páska: almennur frídagur.
    • Páskadagur: Stórhátíðardagur.
    • Annar í páskum: almennur frídagur.


Páskar frá 2020-2026.

2020 12. apríl
2021 4. apríl
2022 17. apríl
2023 9. apríl
2024 31. mars
2025 20. apríl
2026 5. apríl


Heimild: Áttavitinn.is