Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Malt og appelsín í dós frá Ölgerðinni vegna glerbrots. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á einungis við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Egils
- Vöruheiti: Malt og appelsín
- Best fyrir dagsetning: 02.08.21
- Pökkunardagur: 02.11.20
- Lotunúmer: 02L20307015730
- Strikamerki: 5690541004800
- Nettómagn: 0,5 l
- Framleiðandi: Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.
- Dreifing: Verslanir um allt land
Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu eða skiptum á samskonar vöru. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður gæðadeildar Ölgerðarinnar í síma 621 5110.
Ítarefni
- Fréttatilkynning Ölgerðarinnar
- Fréttatilkynning Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á – upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir
- Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook