Í gær mánudaginn 15. febrúar fengu nemendur 6. bekkjar við Grunnskóla Fjallabyggðar góða heimsókn, en það var Snorri Másson sem kom á vegum Árnastofnunar með erindi sem heitir Handritin til barnanna.

Heimsóknin var í tilefni af því að í vor verða 50 ár liðin frá heimkomu handritanna.

Hann sýndi nemendum forn handrit og var með ýmsa fróðleiksmola um þennan forna arf. Nemendur voru áhugasamir eins og má sjá af myndum.

Sjá fleiri myndir: HÉR

Mynd/Grunnskóli Fjallabyggðar