Alls tóku 35 keppendur þátt þegar Ólafsfjarðarmót í svigi og skíðagöngu með frjálsri aðferð fór fram í gær. Keppnin fór fram við góðar aðstæður á skíðasvæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar.
Að sögn Skíðafélags Ólafsfjarðar hófst dagskráin með skíðagöngu klukkan 17:20. Genginn var nýr hringur, rangsælis miðað við það sem venja er og var fjöldi hringja mismunandi eftir aldri keppenda.
Að skíðagöngu lokinni var strax haldið áfram með svigkeppni um klukkan 18:00. „Veður lék við okkur í dag, færið reyndar blautt og þungt enda um 10 stiga hiti, logn en sólin lét sig hverfa,“ segir í tilkynningu Skíðafélags Ólafsfjarðar.
Þrátt fyrir hlýindi og þungt færi var dagurinn talinn heppnast vel og rík ánægja með mótið. Skíðasvæðið er enn með góðan snjó og lofar það góðu fyrir áframhaldandi æfingar fram að Andrésarleikum.
Úrslit mótsins má sjá á meðfylgjandi myndum hér að neðan:
- Svigkeppni í Tindaöxl
- Skíðaganga með frjálsri aðferð við Bárubraut
Myndir: skiol.is







