Nú líður að hinni árlegu ferð félagsmiðstöðvarinnar Neons á Samfestinginn og Söngkeppni Samfés sem haldin er í Laugardalshöll í Reykjavík. Ferðin er nýtt til allskonar hópeflis fyrir unglingana. Farið hefur verið í bíó, skemmtigarð o.s.frv.
Unglingar í Neon munu ganga í hús og óska eftir stuðningi bæjarbúa til ferðarinnar dagana 13.-15. mars nk. Á móti vilja unglingar rétta íbúum hjálparhönd og fyrirhugað er að vikan 11.-15.mars verði Góðgerðarvika.
Góðverkin geta verið í formi:
- Setja í poka fyrir fólk í búðinni og bera vörur út í bíl
- Moka úr tröppum
- Fara út með hundinn
- Vaska upp á kaffistofum
- Þvo glugga
- Týna rusl i bænum
- Taka þátt í félagsstarfi eldri borgara
- Hjálpa til í stofnunum/fyrirtækjum
Fyrirtækjum sem þiggja góðverk er frjálst að styrkja unglingana til ferðarinnar.