Menningarfélag Húnaþings vestra ætla að standa fyrir því að dansskór snúist með óhóflegum hætti á kaffiböðuðu dansgólfinu í félagsheimilinu Ásbyrgi annað kvöld föstudaginn 18. október. Þar munu ýmsir stíga á stokk til að framreiða taktfasta tónlistina.

Fremst í flokki fara þar Marinó Björnsson, Skúli Einarsson og Sigurður Ingvi Björnsson. Þeir munu sennilega verma sviðið mest allt kveldið. Hins vegar munu Sveinn Kjartansson og Þorvaldur Pálsson einnig vera þar, sem og Bjössi og Benni og svo Hljómsveit Ragnars Leví.

Staður: Ásbyrgi á Laugarbakka
Stund: Föstudagskvöldið 18. október 2019 kl. 20:00
Seðlar: 1.500 kr. (einnig posi á staðnum)

 

Mynd: pixabay