Ferðafélagið Trölli í Fjallabyggð býður upp á 7 magnaðar gönguferðir um Tröllaskagann dagana 12. – 18. júlí og verða ferðir við allra hæfi.
12. júlí
Siglufjarðarskarð Hraun í Fljótum – Skarðsdalur Siglufirði Afar falleg gönguleið og skemmtileg, tekur ca 4 klst. með keyrslu til og frá, mesta hækkun um 600 m í Skarðinu, ca 10km og 2,5 skór af 5 í erfiðleikastigi.
13. júlí
Fossdalur Ólafsfirði Gengið frá Kleifum á Ólafsfirði eftir kindaslóðum að Bríkurvita og svo inn í Fossdalinn, létt og falleg leið, ca 9km og tekur um 3 klst.
14. júlí
Dalaleið Mánárdalur í Fljótum – Siglufj Keyrt inn fyrir Almenninga Siglufirði, gengið upp hrygg í Mánárdal svo eftir brúnum fjalla með dásamlegt útsýni yfir Siglufjörð og dali, farið niður frekar bratt gil við hestshúsin, mesta hækkun um 520m, tekur ca 3 klst. og erfiðl. stig 2,5 skór.
15. júlí
Gamli Múlavegurinn frá Ólafsfirði til Dalvíkurbyggðar ATH ekki fyrir lofthrædda. Frekar brött leið á köflum þar sem vegur er farinn í sundur. 2,5 skór, tekur ca 3 klst. Mesta hækkun um 400m uppá stóra plan þar sem sést vel til allra átta ef veður er bjart.
16. júlí
Fossabrekkur Kleifar Ólafsfirði – Héðinsfjörður Keyrt fram að Kleifum gengið þaðan inn Syðriárdal sem er aðeins á fótinn, fjöllin há og reisuleg til beggja hliða. Í botni dalsins er svo gengið yfir tvær melöldur svokallaðar Fossabrekkur, yfir skarðið og ofaní Möðruvallaskál og þaðan ofaní Héðinsfjörð. Mesta hæð 680m, um 11km og ca 6-7 klst ganga. Erfiðl.stig 2,5 skór.
17. júlí ( laugardag )
Hreppsendaársúlur Ólafsfirði Keyrt fram á heiði, gengið sem leið liggur upp á hrygginn sunnan Súlnanna og þaðan á Lundshnjúk og svo á Súlurnar. ca 7km. Tekur um 4 klst. Mesta hæð 1050m. Erfiðl.stig 3-3,5 skór.
18. júlí ( sunnudag )
Hestskarð Héðinsfjörður – Siglufjörður Farið er frá Skútudalnum á Siglufirði rétt fyrir innan gangnamunnan, eftir hlykkjóttum slóða uppí skarðið sem er nokkuð bratt, og er í u.þ.b. 500m hæð. Ef veður er gott og fólk tilbúið er hægt að ganga eftir klettabelti og uppá Hestskarðshnjúkinn sem stendur í 855m, eða farið bara beint ofaní Hestdalinn og niður í Héðinsförð. Gengið eftir kindaslóða að vegmunna. Ca 3-4 klst. leið og um 4km, erfiðleikastig 2-3 skór.
Ferðafélagið Trölli Fjallabyggð
Ferðafélagið Trölli á facebook
@Trolls625
· Hiking Trail