Menntaskólinn á Tröllaskaga er afar vel tækjum búinn og á t.d. ljósmyndabúnað af ýmsu tagi til afnota fyrir nemendur í listljósmyndun og öðrum skapandi greinum.
Í gær var ljósmyndastúdíó skólans í notkun allan daginn. Fyrst voru þar nemendur í ljósmyndaáföngum í verkefnavinnu en eftir hádegið fylltist stúdíóið af grunnskólanemum. Þau völdu inngang að listum sem val í sínum skóla en áfanginn er skylda á öllum stúdentsbrautum í MTR.
Í áfanganum fá nemendur að spreyta sig á ýmsum listgreinum og þessa dagana eru þau að fást við ljósmyndun. Þó að stúdíóljósmyndum sé ekki beinlínis hluti af náminu fengu þau að bregða á leik í stúdíói skólans og þótti ekki leiðinlegt, eins og sjá má af þessum myndum.
Karen Helga tók forsíðumyndina af þeim Víkingi, Skarphéðni og Ragnhildi við að sviðsetja vandræðalega fermingarmynd.