Uppskrift fyrir 4

  • 6 svínakótelettur
  • 1 gulrót
  • 1 gulur laukur
  • 1 lárviðarlauf
  • salt og pipar
  • vatn
  • 1 msk. kálfakraftur (kalvfond)
  • 2 dl. rjómi
  • 1 dl. sýrður rjómi
  • 1 msk. sojasósa
  • salt og pipar
  • sykur

.

 

Saltið og piprið kóteletturnar og brúnið þær á báðum hliðum á rúmgóðri pönnu. Skerið lauk í báta og gulræturnar í sneiðar og bætið á pönnuna, hellið síðan vatni svo rétt fljóti yfir. Setjið kálfakraft og lárviðarblað í og látið sjóða undir loki við vægan hita í 2-3 klukkustundir. Snúið kótelettunum gjarnan annað slagið.

Takið kjötið af pönnunni og sigtið sósusoðið. Setjið soðið aftur á pönnuna (laukurinn og gulrótin eiga ekki að vera með), hrærið rjóma og sýrðum rjóma saman við og smakkið til með sojasósu, salti og pipar. Setjið smá sykur í sósuna og leggið kóteletturnar í og látið sjóða saman í nokkrar mínútur. Berið fram með kartöflum og rifsberjahlaupi.

.

 

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit