Hafnar eru æfingar á söngleiknum Himinn og jörð eftir Ármann Guðmundsson en er söngleikurinn saminn fyrir Leikflokk Húnaþings vestra við 16 lög Gunnars Þórðarsonar .

Um 40 manns taka þátt í undirbúningi sýningarinnar enda verkin ófá.  Meðal annara eru um 6 stúlkur sem sjá um barnapössun enda ófáir foreldrar sem eru þátttakendur verksins. Kór- og hljómsveitaræfingar hófust í byrjun janúar og leikæfingar seinni hluta þess mánaðar.  Er Ármann Guðmundsson leikstjóri verksins en kór- og hljómsveitarstjóri er Ingibjörg Jónsdóttir.

Áætlaðir sýningadagar eru um komandi páska og verða þeir auglýstir nánar síðar ásamt ýmsum tilboðum sem verða í boði í samvinnu við matar- og gististaði í Húnaþingi vestra.

Myndir/Leikflokkur Húnaþings vestra