Þjóðaskrá Íslands hefur gefið út Íbúafjölda eftir sveitarfélögum 1. nóvember 2022.

Þar má sjá að íbúum í Fjallabyggð hefur fjölgað um 10 frá 1. desember 2021, en þá voru 1.971 með lögheimili þar. Eru þá íbúar Fjallabyggðar þann 1. nóvember 2022 1.981 manns og mælist hækkunin 0,5 %.

Þann 1. desember 2019 voru íbúar Fjallabyggðar 2.007 að tölu.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 3.461 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. nóvember 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 687 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 330 íbúa og í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.523 íbúa eða um 7,5%. Íbúum Seltjarnarnesbæjar fækkaði hins vegar um 57 eða 1,2%.

Fjölgar hlutfallslega mest í Kjósarhrepp

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Kjósarhrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tíu mánuði eða um 15,1% en íbúum þar fjölgaði um 37 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Súðavíkurhreppi eða 11,7% en þar fjölgaði íbúum um 25. Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 8 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 56 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum 

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum.  Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 6,2% sem er fjölgun um 1.793 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 4,0% á tímabilinu eða um 1.303 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 10.220 frá 1. desember 2021 sem er um 3,1%.