RokkBoltinn er á dagskrá FM Trölla í dag kl. 15:00, í þráðbeinni útsendingu frá Studio 2.

Í þættinum verður fjallað um fótboltafréttir og fylgst með gangi mála í þeim leikjum sem eru í gangi á þeim tíma og inn á milli spiluð rokk tónlist.

Þátturinn er á dagskrá á laugardögum frá 15:00 til 17:30.

Umsjónarmaður RokkBoltans er hinn geðþekki fótboltaáhugamaður Hrannar Einarsss.

FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is