Hafra- og speltbrauð
- 4 d.l spelt (ég nota fínmalað)
- 1 dl. graskersfræ
- 1 dl. hörfræ
- 1 dl. sólblómafræ
- 1 dl. tröllahafrar eða haframjöl
- 1 msk. vínsteinslyftiduft
- 1 1/2 tsk. kúmen
- 1/2 tsk. salt
- 2-3 msk. hunang
- 2 1/2 dl. vatn
- 1 msk. sítrónusafi
Hitið ofninn í 180°. Blandið þurrefnum saman í skál ásamt hunangi, hellið vatni og sítrónusafa yfir og hrærið öllu rólega saman. Setjið í smurt brauðform og bakið í 35-40 mínútur.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit