Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni – allir fánar á loft!

Kl. 11:00 17. júní hlaupið fer fram á íþróttavellinum á Dalvík í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS.
Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.

Kl. 13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu. Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega og taka með sér fána og veifur. Andlitsmálun í boði frá kl. 12:00.

Kl. 13:30 Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi

Ávarp fjallkonunnar
Hátíðarræða Sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar
Tónlistaratriði

Það spáir karamellurigningu í kringum Berg

Að lokinni hátíðarstund við Berg:

Hestamennska – Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta
undir börnum við Krílakot.

Leiktæki í umsjón flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku 

Sápubolti, vatnsrennibraut og fleira skemmtilegt.
Allir sem vilja fá grillaða pylsu í kirkjubrekkunni.

Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.

Myndlistasýning Emmi Kalinen í Bergi opin frá 10 – 17.
Allir velkomnir.

Allir krakkar fá frían snúð og kakó hjá Böggvisbrauð Café á 17. júní.
Opið í Böggvisbrauð Café til kl. 17:00

(athugið að kaffisala UMFS verður ekki í ár)