Fimmtudaginn 18. október var mikið um að vera á hátíðarfundi Rótarýklúbbs Ólafsfjarðar á Höllinni í Ólafsfirði.
Mikið var um að vera og kom umdæmisstjóri hreyfingarinnar, Garðar Eiríksson í heimsókn ásamt konu sinni, Önnu Vilhjálmsdóttur.
Tveir félagar voru gerðir að heiðursfélögum og Skíðafélagi Ólafsfjarðar veittur peningastyrkur til snjótroðarakaupa.
Í tilefni af styrknum var Gunnlaugur foresti fenginn til að ræsa nýja Fébókarsíðu sem skíðafélagið hefur verið að vinna að og er eingöngu fyrir Fjarðargönguna, almennings-skíðagöngu sem er haldin í Ólafsfirði á hverju ári.
Þegar Umdæmisstjórar koma á fundi klúbbsins, er mökum félaga gjarnan boðið með og þannig var það einnig nú, auk þess sem nokkrum öðrum gestum var einnig boðið. Það var því óvenju fjölmennur hátíðarfundur á Höllinni.
Myndir: K. Hararldur Gunnlaugsson