ASÍ er með áhugavert hlaðvarp (e. podcast) þar sem meðal annars má heyra áhugavert viðtal um skipulagða glæpastarfsemi á vinnumarkaði hérlendis.

Á vefsíðu þeirra segir meðal annars:

Skipulögð glæpastarfsemi, þar á meðal skipulögð brot á vinnumarkaði, er ein hættulegasta ógn við íslenskt samfélag í dag. Þetta sýnir ný skýrsla greiningadeildar Ríkislögreglustjóra. ASÍ hefur í mörg ár bent á þetta, ekki síst Halldór Grönvold og María Lóa Friðjónsdóttir sem vinna að þessum málum hjá ASÍ og eru hér í mjög svo forvitnilegu hlaðvarps viðtali.

Hér má svo hlusta á Hlaðvarp ASÍ