KF, Fjallabyggð og Reynir, Dalvík hlutu 1.636.884 krónur, Kormákur/Hvöt á Hvammstanga hlaut 818.442 krónur og Tindastóll, Sauðárkrók hlaut 3.682.990 krónur í HM framlag frá KSÍ.

KSÍ greiðir 200 milljónir króna til aðildarfélaga KSÍ vegna HM í Rússlandi. Fjármunum sem veitt er til aðildarfélaga skal eingöngu varið til knattspyrnutengdra verkefna félaganna.

Á ársþingi KSÍ sem fram fór 10. febrúar sl. var tilkynnt að 200 mkr. yrði úthlutað á árinu til aðildarfélaga KSÍ sem sérstakt HM framlag. Stjórn KSÍ hefur nú ákveðið hvernig greiðslurnar skiptast á milli aðildarfélaga.

Framlag til aðildarfélaga byggist fyrst og fremst á stöðu meistaraflokks karla og kvenna í deildum sl. 2 ár, 2017 og 2018, en við úthlutun eftir EM 2016 var miðað við árin 2014-2016. Félögum er skipt upp í tvo flokka. Annars vegar félög í deildarkeppni, sem eru með unglingastarf og hins vegar félög sem ekki standa fyrir barna- og unglingastarfi. Félögin með unglingastarf, sem eru alls 47, fá liðlega 198,5 mkr. sem skiptast eftir gefnum stigum sem miðast við stöðu í deildum á áðurnefndu tímabili. Félögum án unglingastarfs, sem eru 30, er úthlutað alls tæplega 1,7 mkr. Aðferðafræðin er því sambærileg því sem viðhöfð var árið 2016.

Þeir fjármunir sem nú skila sér til knattspyrnufélaga á Íslandi skipta aðildarfélögin verulegu máli. Stjórn KSÍ væntir þess að þeim verði ráðstafað til verkefna sem skili bættu starfi til lengri tíma.

Frekari upplýsingar um HM framlag má sjá hér: KSÍ

 

Frétt og mynd: KSÍ