Í gær 19. apríl voru nýju Hopp rafskúturnar formlega vígðar á götum Siglufjarðar þar sem Sigríður Ingvarsdóttir, bæjarstjóri tók sinn fyrsta Hopp rúnt um bæinn ásamt forsvarsmönnum Hopp þeim Michael Given, sölustjóra, Paula Sagan, sölufulltrúa og Ólöfu Rún Ólafsdóttur, forsvarsmanni Hopp í Fjallabyggð.

Til að byrja með verður boðið upp á 15 hjól á Siglufirði og 10 hjól í Ólafsfirði.

Mælt er með að íbúar skelli sér á hopp rúnt inn í sumarið! Hoppið þó varlega og leggið hjólunum snyrtilega með tilliti til gangandi vegfaranda.

Fyrsta skref er að ná sér í Hopp appið og mun fyrsta ferðin með Hopp vera frí til 26. apríl. Bent er á að 18 ára aldurstakmark er á Hopp hjólin.

“Við hjá Fjallabyggð bjóðum Hopp velkomið og erum afar ánægð með að Hopp hafi ákveðið að bjóða upp á sína þjónustu hjá okkur og getum nú boðið upp á grænan samgöngukost. Skúturnar eru þægilegar, nútímalegar og umhverfisvænar sem nýtast heimamönnum jafnt og gestum. Óskum aðstandendum fyrirtækisins góðs gengis”, segir á vefsíðu Fjallabyggðar.

Forsvarsmenn Hopp biðja notendur að leggja hjólunum þannig að þau standi ekki í vegi fyrir öðrum vegfarendum og hlakka til hoppa með notendum inn í sumarið.

Áformað er að Hopp komi einnig til Dalvíkur næsta vor.

Myndir/aðsendar