Menntun og mönnun í heilbrigðisþjónustunni, staða rannsókna og vísindastarfs og forysta til árangurs.
Þetta verða viðfangsefni fundar sem heilbrigðisráðherra boðar til 5. september nk. Markmiðið er að fjalla um þessar mikilvægu stoðir heilbrigðiskerfisins í ljósi nýrrar heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Fundurinn verður haldinn í Veröld, húsi Vigdísar kl. 17. – 19.
Umræðustjórar verða Ævar Kjartansson og Magnús Karl Magnússon sem fá til sín í sófaspjall marga góða gesti með víðtæka þekkingu og reynslu á þessum sviðum. Fundarstjóri verður Björg Magnúsdóttir.
Streymt verður beint frá fundinum og verður útsendingin aðgengileg á vef heilbrigðisráðuneytisins www.hrn.is
Sjá nánar dagskrá fundarins á stjornarradid.is